Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit áfram í úrslit og
dómnefnd, undir forystu Árna Matthíassonar, einnig eina hljómsveit.
Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa,
en salur og áheyrendur kjósa um Hljómsveit fólksins. Athugið að
þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að
velja hljómsveitir áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi
að hljómsveit komist áfram þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram á
undankvöldi. Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum
öllum fjórum undankvöldunum auk þess sem hringt verður í þá
hljómsveit.
Dómnefndina 2019 skipa:
Árni Matthíasson - Formaður
Arnar Eggert Thoroddsen
Hildur Guðný Þórhallsdóttir
Kristján Kristjánsson
Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Ragnheiður Eiríksdóttir
Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir.